Logi, Glóð og Brennuvargur
Slökkviálfarnir Logi og Glóð urðu upphaflega til í samstarfi við SHS, eða Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins. Þessir karakterar bera uppi námsefni sem liðsmenn slökkviliða landsins fara með í skólana á ári hverju.
Þannig fá börn í elsta árgangi leikskóla og 3.bekk grunnskóla um allt land að kynnast helstu áherslum eldvarna.
Meðal útgefins efnis í seríunni eru plaköt, bókin um Brennuvarg, viðurkenningarskjöl, barmmerki, slidessýning og bæklingur sem inniheldur eldvarnagetraun. Auk þess má finna Loga og Glóð á vefsvæði Brunabótar.
Höfundar alls efnisins auk mín, eru Garðar Guðjónsson og Þrúður Óskarsdóttir.
Teikningar Halla Sólveig
Hönnun Þrúður Óskarsdóttir
Umsjón og texti Garðar Guðjónsson
Útgefandi SHS, LSS og EBÍ
Prentun Svansprent
Tækni Vektorar og stafræn litun