Teikningar fyrir sýninguna Endurfundir
– á Þjóðminjasafni Íslands
Sýningin Endurfundir stóð í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands 2009-2010. Hún varpaði ljósi á rannsóknir sem gerðar voru á menningar- og trúararfi þjóðarinnar fyrir tilstilli Kristnihátíðarsjóðs.
Mitt hlutverk var að draga upp myndir af munum á sýningunni til skýringar, og af kortum fornleifafræðinga af kumlum og fleira. Sérstakt barnaefni var einnig unnið.
Myndirnar voru framsettar í stóru formati á útprentuðum límfilmum á veggjum rýmisins. Hluti af efninu var á prentformi og annað sem límfilmur á sýningarkassa. Hönnuður sýningarinnar lagði línur varðandi litapallettu og varð útkoman hin glæsilegasta.
Teikningar Halla Sólveig
Sýningarhönnun Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir
Grafísk hönnun Sigrún Sigvaldadóttir
Umsjón Bryndís Sverrisdóttir
Verkkaupi Þjóðminjasafn Íslands
Tækni Vektorar