Engill í Vesturbænum
Kristín Steinsdóttir skrifaði þessa frábæru sögu um snillinginn hann Ask. Ég vann myndirnar og Sigrún Sigvaldadóttir sá um grafíska hönnun bókarinnar. Útkoman úr þessu skemmtilega samstarfi varð tæplega 100 síðna bók sem var verðlaunuð í bak og fyrir og kom út á mörgum tungumálum.
Meðal annars fékk ég fyrstu íslensku myndskreytiverðlaunin, Dimmalimm verðlaunin sem voru veitt. Bókin hlaut Barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur 2003, Norrænu barnabókaverðlaunin 2003, Vorvinda, viðurkenningu IBBY á Íslandi 2003 og Vestnorrænu barnabókaverðlaunin 2004.
Teikningar Halla Sólveig
Hönnun Sigrún Sigvaldadóttir
Texti Kristín Steinsdóttir
Útgefandi Vaka-Helgafell, Reykjavík
Prentun Nörhaven a/s, Danmörku
Tækni Blönduð tækni: akríl á karton, klippimyndir, blek, trélitir og fleira.
Stærð 20.5 x 20.5 cm
Síður 98